Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
Þessi eign er ekki í boði
REF 4018147
Einstakur íbúðakjarni í Cala de Mijas, rúmlega 1 km frá ströndinni og umkringdur öllum daglegum nauðsynjum. Kjarninn er hannaður sem stór orlofsdvalarstaður með suðrænum eyjastíl, og býður upp á glæsilega íþrótta- og tómstundaaðstöðu, sem gerir íbúðirnar að kjörnu fjárfestingartækifæri. Fuengirola er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð en Málaga, höfuðborg Costa del Sol, og flugvöllur hennar, eru í rúmlega 30 mínútna fjarlægð.
Kjarninn samanstendur af nokkrum þriggja hæða íbúðablokkum, sem raðast í kringum glæsilega garða. Íbúðirnar eru fáanlegar með 2 eða 3 svefnherbergjum og af ýmsum gerðum; íbúðir á jarðhæð með garði, íbúðir á miðhæð með stórri verönd og þakíbúðir. Íbúðirnar hafa opna hönnun sem sameinar setustofu, borðstofu og eldhús ásamt stórum glerhurðum með útgengi út á verönd. Flestar íbúðirnar eru með stórkostlegu sjávarútsýni. Íbúðirnar eru afhentar með eldhústækjum, loftkælingu, gólfhita á baðherbergjum, geymslu og 1 eða 2 bílastæði, allt eftir gerð.
Sameiginleg aðstaða er glæsileg og inniheldur meðal annars klúbbhús, úti og inni líkamsrækt, paddle og tennisvelli, badmintonvöll, fjölnota velli, strandblakvöll, vinnurými, golfhermi, strandsundlaug, innisundlaug, tyrkneskt gufubað, finnskt gufubað og leiksvæði fyrir börn.Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina.
Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum