Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
Þessi eign er ekki í boði
REF 4174327
Glæsileg íbúðasamstæða, aðeins 5 mínútur frá La Cala de Mijas í Málaga. Á þessu svæði við Costa del Sol hefur tekist að sameina sjarma hinna dæmigerðu hefðbundnu Andalúsíuþorpa og alla nauðsynlega þjónustu fyrir lífsstíl nútímans. Það er mikið úrval af golfvöllum á svæðinu og stórkostlegar strendur eru í aðeins 10 mínútna fjarlægð. Önnur mikilvæg þjónusta, eins og sjúkrahús, íþróttamiðstöðvar og nokkrir af bestu veitingastöðum Costa del Sol eru einnig nálægt. Góð tenging er við önnur mikilvæg svæði í héraðinu, með Marbella í aðeins 20 mínútna fjarlægð með bíl og 30 mínútur til Málaga, sem og flugvallarins.
Eignirnar eru byggðar með gæðaefnum og þeim fylgja aukahlutir eins og loftkæling með hitastillum fyrir hvert rými fyrir sig, gólfhiti í allri íbúðinni, eldhústæki, geymsla og tvö bílastæði.
Kjarninn er lokaður og býður upp á 24 klst. öryggiseftirlit og glæsilegt sameiginlegt svæði er til staðar, með stórum görðum og stórkostlegri aðstöðu en þar eru þrjár saltvatnslaugar; útsýnislaug með frábæru útsýni, ein með sundlaugarbar og upphituð innisundlaug. Önnur aðstaða er meðal annars líkamsræktarstöð, golfhermir, leikvöllur fyrir börn, kvikmyndahús, bodega, gastro-bar og vinnurými, með fundaaðstöðu. Hver íbúi mun hafa aðgang að sérútbúnu farsímaforriti með mörgum aðgerðum en þar á meðal má panta einhverja sameiginlega aðstöðu. Skutlþjónusta er í boði fyrir íbúa, milli kjarnans og Cala de Mijas.Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina.
Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum