Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
Þessi eign er ekki í boði
REF 4263458
Lúxus einbýlishús í aðeins sjö mínútna akstursfjarlægð frá Cala de Mijas. Samstæðan er staðsett á virtu golfsvæði, með þremur völlum, 5* hóteli með SPA, íþróttaaðstöðu og golfakademíu. Svæðið hefur fallegar strendur og víkur, mikið úrval af veitingastöðum, matvöruverslunum, verslunum, alþjóðlegum skólum og fyrsta flokks heilsugæslu. Staðsett á milli Marbella og Fuengirola, nýtur svæðið góðs af þjónustunni sem er í boði í þessum tveimur borgum, sem og íþróttastarfsemi til viðbótar, en þar má stunda siglingar, köfun og fleiri vatnaíþróttir. Rancho Acebuchal hestabúgarðinn og fjölmarga tennisklúbba má einnig nálgast þar. Kjarninn er umkringdur náttúrulegu umhverfi, með leiðum sem eru tilvaldar fyrir gönguferðir, fjallahjólreiðar, hestaferðir og fjórhjólaferðir. A-7 og AP-7 hraðbrautirnar tengja kjarnann við önnur mikilvæg ferðamannasvæði, eins og fallega bæinn Mijas á 25 mínútum, Marbella á 30 mínútum og Puerto Banús á 35 mínútum. Málaga og alþjóðaflugvöllurinn eru í innan við klukkutíma fjarlægð.
Nútíma einbýlishús á tveimur hæðum, með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum, byggð á lóðum á milli 1.208m2 og 1.363m2. Allar villurnar eru með fallega landslagsræktuðum görðum, með einkasundlaug og stórkostlegu útsýni yfir golfvöllinn og náttúruna í kring. Inni og úti svæði sameinast fullkomlega og alrýmið er opið og rúmgott. Það fer eftir byggingarstigi hvort mögulegt er að breyta skipulagi á jarðhæð með því að búa til sjálfstætt eldhús, sem dæmi. En-suite svefnherbergi er á jarðhæð, en 3 en-suite svefnherbergi á efri hæð, öll með beinan aðgang að verönd.
Lúxus frágangur er á eignunum og þeim fylgir loftkæling, innbyggðir fataskápar, foruppsetning fyrir snjallkerfi, myndbandsdyrasími, sjálfvirkt vökvunarkerfi, einkasundlaug og bílastæði á lóð með sjálfvirku hliði.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina.
Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum