Þakíbúð með útsýni til hafs, þakverönd og sundlaug í Cala de Mijas

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 131,512,500 kr
frá 875.000€

2

2

86.36 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4540437

Glæsilegar íbúðir með víðáttumiklu sjávarútsýni, 10 mínútur frá ströndinni í Cala de Mijas. Frábær staðsetning, á rólegu svæði umkringt náttúru og aðeins nokkrar mínútur frá öllum þægindum, eins og verslunarmiðstöðvum, matvöruverslunum, heilsugæslustöð, bönkum og veitingastöðum. Þetta svæði við Costa del Sol er mjög vinsælt meðal golfáhugafólks þar sem margir vellir eru mjög nálægt, t.d. Calanova golfklúbburinn, sem er í aðeins 3ja mínútna fjarlægð, Miraflores golfvöllurinn, sem er í 5 mínútna fjarlægð, og Chaparral golfklúbburinn, sem er í 13 mínútna fjarlægð. Svæðið býður einnig upp á mikið úrval af ævintýraíþróttum og hvers kyns vatnaíþróttir. AP-7 og A-7 hraðbrautirnar gera það auðvelt að komast til annarra ferðamannasvæða, eins og Fuengirola og Marbella á 20 mínútum, Puerto Banús á 25 mínútum eða Málaga og flugvallarins á rúmlega 30 mínútum. Það er kjörinn staður fyrir þá sem eru að leita að sumarbústað eða til varanlegrar búsetu.

Íbúðirnar eru í tveimur byggingum og fáanlegar með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Velja má milli jarðhæðaríbúða með einkasundlaug, miðhæðaíbúða með verönd (með/án einkasundlaugar), og stórbrotinna þakíbúða með stórum veröndum, þakverönd og einkasundlaug. Allar íbúðirnar snúa í suður, með stórkostlegu 180º útsýni yfir Miðjarðarhafið, sem og strönd Mijas. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu, eldhúsi og borðstofu, í rúmgóðu rými með stórum gluggum sem opnast út á stóra verönd. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi. Það fer eftir byggingarstigi, hvort hægt er að sérsníða frágang með úrvali af valkostum.

Gæðafrágangur er á eignunum, þeim fylgja eldhústæki, loftkæling með svæðaskiptingu, gólfhiti, fullbúin baðherbergi, foruppsetning fyrir þjófavarnakerfi, geymsla og bílastæði. Þakíbúðirnar með 3 svefnherbergjum eru með 2 bílastæðum.

Íbúðasamstæðan er með alhliða móttökuþjónustu og býður upp á frábært sameiginlegt svæði, með sérhönnuðum görðum, stórri útsýnislaug með veröndum og grasflötum, svæðum til að slaka á með pergólum, salernum, gastro-bar, líkamsræktarstöð, upphitaðri innisundlaug með kyrrstöðusundkerfi, golfhermi og fjölnota setustofu.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • bílastæði
  • þakverönd
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 37 km
  • 4 km
  • 9 km
  • 2 km
  • 9 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.