Costa del Sol, Málaga, Antequera
Þessi eign er ekki í boði
REF 4751780
Nútímaleg einbýlishús þar sem eldhús, stofa og borðstofa eru í einu opnu rými sem opnast út á verönd með stórkostlegu útsýni af La Vega de Antequera. Stórt útisvæðið inniheldur verandir, einkasundlaug og garð, kjörið til að njóta veðurblíðunnar. Húsin eru fáanleg í mismunandi útgáfum; einbýli á einni hæð með 2 eða 3 svefnherbergjum, eða einbýli á 3 hæðum með 4 svefnherbergjum. Hverju húsi fylgja tvö bílastæði.
Aukalega er hægt að fá aðstoð innanhússhönnuðar til að hanna húsin að vild hvers og eins, þ.e. ef byggingarstig leyfir. Þá er í boði að byggja auka hæð við húsin sem eru með 3 svefnherbergjum og bæta því fjórða við, sem og baðherbergi og verönd. Við húsin sem eru með 4 svefnherbergjum er hægt að bæta skrifstofu við efstu hæðina.
Allur kjarninn verður með hámarks öryggisgæslu allan sólarhringinn, auk þess verður í boði að kaupa þjónustu s.s. hreingerningar, viðhald, garðyrkjuþjónustu og útleiguþjónustu.
Um er að ræða hús í hjarta Andalúsíu sem eru bæði frábær fjárfesting sem annað heimili jafnt sem heimili allan ársins hring.
Costa del Sol, Málaga, Antequera
Sveitarfélagið Antequera er gríðarstórt (810.39 km2), það stærsta í Malaga og eitt það stærsta á Spáni. Íbúafjöldi er um 42.400 sem dreifist á nokkur svæði innan sveitarfélagsins. Þó að það sé landfræðilega nálægt sjó þá er það ekki eins og flestir sjávarbæir þar sem stór fjallgarður er á milli sjávar og íbúðabyggðar. Loftslagið er milt og svipar til meginlandsloftslags.
Þar er að finna ríka arfleifð fornleifa og arkitektúrs, svo sem forn mannvirki úr stórum steinum sem eru við Menga, Viera og El Romeral, sem og kirkjur, klaustur og hallir frá mismunandi tímabilum og stílum. Umhverfislega er náttúruparadísin El Torcal afar tilkomumikil hvað varðar gróður og landslag en þar er að finna eitt flottasta kalksteinasvæði Evrópu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum