Nútímaleg íbúð í lokuðum kjarna í Málaga

Costa del Sol, Málaga

Þessi eign er ekki í boði


2

2

153.99 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4200590

Nýr íbúðakjarni í Málaga, staðsettur innan við 10 mínútur frá Pablo Ruiz Picasso göngusvæðinu, sögulega miðbænum og La Caleta ströndinni. Málaga er borg með lifandi lista- og menningarlífi sem býður upp á meira en 36 söfn og listasöfn, að ógleymdri fallegri strandlengjunni sem laðar að sér gesti allt árið. Íbúðirnar eru staðsettar á nýbyggðu svæði og hafa glæsilega, nútímalega hönnun þar sem gróður skipar stórt hlutverk en það gerir kjarnann að einni sérstæðustu byggingu svæðisins. Stutt er í alla nauðsynlega þjónustu, svo sem matvöruverslun, íþróttasvæði, heilsugæslustöðvar, frábæra skóla, leikskóla og óviðjafnanlegt matar-, verslunar- og tómstundaframboð. Að auki er Torremolinos í aðeins 20 mínútna fjarlægð, Marbella og Puerto Banús eru í 50 mínútna fjarlægð. A-7 og AP-7 hraðbrautirnar tengja þannig svæðið við önnur mikilvæg ferðamannasvæði á staðnum. Alþjóðaflugvöllurinn og AVE-lestarstöðin eru í innan við 20 mínútna fjarlægð.

Nútímalegar íbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum með 2 baðherbergjum og 4 svefnherbergjum með 3 baðherbergjum. Allar eignir hafa verið hannaðar með því að nýta rými, sólarljós og næði til hins ýtrasta; nútímaleg, hagnýt og aðlaðandi hönnun. Íbúðirnar eru með stórum svefnherbergjum og stofum með stórum glerhurðum sem leiða út á stórar verandir með útsýni yfir fallega sameign. Eftir því á hvaða byggingarstigi íbúðirnar eru þegar keypt er, má breyta einhverju í skipulagi, svo sem velja um sjálfstætt eða opið eldhús.

Öllum eignum fylgir loftkæling, foruppsetning á snjall heimiliskerfi, vatnstengi og innstunga á verönd, myndavélardyrasími í lit, geymsla og 1 eða 2 bílastæði, eftir gerð eignar, með foruppsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla. Byggingin er einnig með BREEAM© vottorðið með verulegum efnahagslegum ávinningi fyrir íbúa, en vottorðið þýðir lækkaða orku- og vatnsnotkun.

Íbúðakjarninn hefur nokkur sameiginleg svæði en þar skara framúr stórbrotnar fosslaugar fyrir fullorðna og börn, stórir garðar með náttúrulegu grasi, salerni, leikvöllur, líkamsræktarstöð, fjölnota herbergi og sælkerarými.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Málaga

Málaga borg, höfuðborg samnefnds héraðs, er staðsett við vesturhluta Miðjarðarhafsins á suðurströnd Spánar, í um 100km fjarlægð frá Gíbraltarsundi. Íbúafjöldi borgarinnar er um 580.000 og hún þannig önnur fjölmennasta borg Andalúsíu og sjötta í röðinni yfir Spán í heild sinni. Borgin var stofnuð af Föníkumönnum á áttundu öld fyrir Krist, sem gerir hana enn fremur að einni elstu borg Evrópu. 

Fyrir utan sólríkar strendur, býr þessi borg við rætur Miðjarðarhafsins að mjög áhugaverðum menningarhefðum. Staðurinn sem bauð snillinginn Pablo Picasso velkominn í heiminn, hefur á undanförnum árum aukið við menningararfinn og opnað söfn við allra hæfi. Í borginni má finna einu Pompidou miðstöðina utan Frakklands. 

Á síðustu árum hefur Málaga bæst í hóp bæjarfélaga sem kalla má hefðbundna áfangastaði þeirra sem velja þann kost að koma sér upp heimili í sólinni, á borð við Marbella og Benahavís, þökk sé ríkara menningarlegu framboði, úrvali tómstunda og dægradvalar, tæknivæðingu í borginni og nútímalegri aðlögun að grunnþörfum þeirra sem ferðast og dvelja á staðnum. Það er notalegt að ganga um borgina sem verður alltaf vinsælli og sjá hvernig Alcabaza virkið, Castillo de Gibralfaro kastalinn og dómkirkjan, La Catedral, blandast við önnur hverfi eins og listamannahverfið Soho, með veröndum þar sem má tylla sér og snæða…eða fyrir þá sem elska að versla, að kanna merkar verslanagötur. 

  • 14 km
  • 3 km
  • 3 km
  • 2 km
  • 1 km
  • 6 km

Nánari upplýsingar um Málaga

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.