Costa Blanca Norður, Marina Alta, Calpe
Þessi eign er ekki í boði
REF 4736354
Glæsilegt einbýlishús í lokuðu íbúðarhverfi í Calpe á hækkuðum reit sem tryggir stórkostlegt útsýni yfir Miðjarðarhafið og Peñon de Ifach steininn. Hverfið er þekkt fyrir kyrrlátt umhverfi en þó í stuttri fjarlægð frá nauðsynlegri þjónustu miðbæjarins. Úrval veitingarstaða og tómstunda er í nálægð, s.s. golfvellir, gönguleiðir til útivistar, siglingaleiðir og menningarstaðir. Calpe býr yfir fallegum ströndum sem eru eingöngu í 2ja km fjarlægð og tengist hverfið vegakerfinu á þægilegan máta. Stutt er í tengingar á N332 og AP7 hraðbrautina. Benidorm er í um 25 mínútna fjarlægð og Alicante í tæplega klukkustundarfjarlægð.
Þetta nútímalega einbýlishús er á þremur hæðum með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum og stendur á lóð sem er 987m2. Stofan, eldhúsið og borðstofan er eitt opið rými með gólfsíðum gluggum sem opnast út á half-opnar svalir með “infinity” sundlaug. Útisvæðið er kjörið til að njóta þess að borða úti í mildu loftslagi Costa Blanca og horfa til sjávar. Á hæðinni eru einnig 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, annað þeirra er inn af öðru svefnherberginu. Þá er einnig geymsla á hæðinni. Á annarri hæðinni er stórt svefnherbergi með baðherbergi og fataherbergi, og litlum svölum. Þá er hjónasvítan einnig á hæðinni með fataherbergi, stórt baðherbergi með stóru baðkari og sérsvölum með sjávarútsýni. Kjallarinn er eitt stórt opið rými, s.s. fyrir tómstundaaðstöðu, og þvottahús. Bílskúrinn er tvöfaldur.
Húsið verður byggt með úrvals byggingarefnum, gólfhita, loftræstingu, innbyggðum eldhústækjum, led lýsingu, rafstýrðum gluggatjöldum í svefnherbergjum, fullbúnum fataskápum, innbyggðu öryggiskerfi, ásamt fjarstýrðri bílskúrshurð. Útisvæðið verður með “infinity” sundlaug með hitakerfi, lýsingu á öllu útisvæðinu s.s. á gangvegum og útieldhúsi, ásamt sjálfvirku vökvunarkerfi fyrir plöntur og gras.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Calpe
Calpe er, ásamt Denia, ein af megin borgunum á Norður Costa Blanca. Eitt af einkennum Calpe og táknrænt fyrir Costa Blanca er Peñón de Ifach, klettur sem teygir sig 332 m. upp til himins af ströndinni. Peñón de Ifach er heimili ýmissa fuglategunda og hefur verið þjóðgarður frá 1987.
Calpe er alsett gæðalegum ströndum og víkum sem þúsundir gesta hafa notið á síðustu árum. Ferðaiðnaðurinn hefur breytt þessari hafnarborg í eina af meginkjörnum búsetuferðaþjónustunnar á Costa Blanca. Það má sannreyna á ótrúlegu úrvali þjónustu og fasteigna við sjávarsíðuna. Fasteignakaupandinn hefur úr mörgu að velja, allt frá íbúðum að einstökum einbýlum. Skoðið fasteignirnar á Norður Costa Blanca
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum