Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Þessi eign er ekki í boði
REF 8477
Lúxus íbúðir á einstöku forréttindasvæði Costa Blanca, Altea Hills. Frábær staðsetning við hlið Don Cayo golfvallarins, nálægt La Olla ströndinni og Campomanes höfninni. Beinn aðgangur er að hraðbrautinni og auðvelt að ferðast til nærliggjandi bæja, Altea og Benidorm.
Íbúðirnar búa að einstakri hönnun miðaðri að þægindum og næði íbúanna. Flatarmál þeirra liggur á milli 575 og 900 m2 og svalir eru frá 120 til 300 m2 að stærð með einstöku útsýni til sjávar. Eignirnar hafa sérinngang og bílageymslu fyrir fleiri en eina bifreið sem tengd er fjölnota herbergi. Lúxus umhverfi með stórum görðum og brunnum og útsýnisstöðum. Félagsklúbbur, leiksvæði fyrir börnin og gríðarfalleg sundlaug með hvítum sandi sem líkja má við hitabeltisströnd er einnig í kjarnanum.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Altea er af mörgum talin fegursta borgin á Costa Blanca.
Gamli miðbærinn með sínum þröngu og bröttu götum, hvítu húsum og sinni víðfrægu bláu kirkjuhvelfingu, gefa staðnum töfrum gætt yfirbragð og sjarma. Bóhemískt andrúmsloftið í Altea hefur dregið að listamenn sem leita eftir fegurð og einstakri birtu við Miðjarðarhafið. Við sjávarröndina í neðri hluta bæjarins er strandgata, höfnin og siglingaklúbbur. Á þessu svæði er að finna úrval nýbygginga, sér í lagi íbúðir mjög nálægt ströndinni. Í 5 km. fjarlægð frá miðbænum er Altea Hills, lúxus íbúðasvæði þar sem finna má fimm stjörnu hótel og golfvöll. Hér er að finna einstakt úrval fasteigna, með áherslu á lúxusíbúðir og einbýli. Skoðið fasteignirnar á ströndinni við Altea.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum