Costa Blanca Norður, Marina Baja, Benidorm
REF 4856223
Einstakur íbúðakjarni með sjávarútsýni og einungis 100m frá ströndinni á Benidorm. Frábær staðsetning með allri þjónustu og mjög nálægt strandgötunni með kaffihúsum, börum og veitingastöðum. Gamli bærinn er stutt frá með sínum heillandi mjóu strætum, fallegum byggingum og verslunum. Borgin býður upp á fjölbreytta þjónustu og afþreyingu, s.s. Terra Mitica skemmtigarðinn, Benidorm Palace, dýra- og vatnsrennibrautagarð auk líflegs skemmtanalífs, bari og diskótek. Nokkrir golfvellir eru í 5 km radíus frá svæðinu, s.s. Villaitana Golf, Club Sierra Cortina og Club de Golf Las Rejas. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu, þ.e. við AP-7 og N-332 vegina, sem tengja Benidorm við aðrar borgir og flugvöllinn í Alicante sem er í um 40 mínútna fjarlægð.
Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir með 1, 2, 3 og 4 svefnherbergjum, sem dreifast á tvær byggingar, önnur á 32 hæðum og hin á 41 hæð. Báðar byggingarnar snúa í suður og bjóða upp á stórkostlegt sjávarútsýni. Allar íbúðirnar eru með stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými sem opnast út á verönd. Hjónaherbergin í stærri íbúðunum er með baðherbergi inn af, og opnast út á verönd.
Einstakar íbúðir byggðar af gæðum en þeim fylgja loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum, rafknúnar gardínur í stofu og herbergjum, og eftir stærð íbúðar, ýmist eitt eða tvö bílastæði. Aukalega er hægt að fá geymslu og auka bílastæði með íbúðunum.
Sameiginlega svæðið er um 11.000 m2 og snýr að sjó, með miklu úrvali af afþreyingu fyrir bæði börn og fullorðna. Er þar að finna “infinity” sundlaug fyrir fullorðna og heitan pott á rólegu svæði. Þá er einnig hituð sundlaug fyrir fullorðna og barnalaug þar sem eru 3 heitir pottar. Stór opin græn svæðin eru með gosbrunna, salerni, leikvöll og bekki. Fyrir íþróttaáhugamenn er að finna ýmis tækifæri til að stunda íþróttir, s.s. paddle- og tennisvöll, fjölnota íþróttavöll með körfuboltahring og hokký mörkum, auk líkamsræktar sem er innandyra með stórkostlegu útsýni. Aukalega er krakkaklúbbur, sameiginlegt vinnusvæði, bíó-salur og stæði fyrir reiðhjól. Á sameiginlega svæðinu er wifi og bílakjallari sem og bílastæði sem er utandyra. Kjarninn er algjörlega lokaður, með CCTV vöktun og rafstýrðan aðgang með lykilkortum sem tryggir hámarks öryggi íbúa.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Benidorm
Benidorm er talin vera höfuðborg Costa Blanca. Einskoraður leiðtogi sem áfangastur fyrir fríið, en einnig mikilvægur kjarni búsetuferðaþjónustu á Spáni.
Háar byggingar bera við himininn í Benidorm, og því er borgin oft kölluð „New York Miðjarðarhafsins“. Þar er að finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er mjög fjölbreytt, bæði í gerðum og verðum. Fjölbreytt úrval frístunda gera það að verkum að Benidorm er borg fyrir alla. Hvort sem leitað er eftir næturfjöri, fjölskyldustundum eða afslöppun og rólegheitum, þá er endalausa möguleika að finna í Benidorm. Hvort sem um fjárfestingu eða skemmtun er að ræða er öruggt að Benidorm gefur vel af sér fyrir þá sem kaupa fasteign við ströndina. Hér má sjá fasteignaframboðið við ströndina í Benidorm
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum