Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Þessi eign er ekki í boði
REF 2521869
Nýr kjarni einbýlishúsa í Finestrat, íbúðahverfi við Benidorm í norðurhluta Costa Blanca. Skammur akstur er til frábærra stranda Benidorm og í aðra dægradvöl í borginni. Verslanakjarni er í innan við 5 mínútna akstursfjarlægð frá kjarnanum, með öllum nauðsynjum. Kjörin fjárfesting, hvort sem er fyrir dvöl í fríum eða allt árið um kring.
Einbýlishús á tveimur hæðum, byggð á lóðum milli 385 og 540m2, með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og kjallara/bílskúr. Aðalhæðin samanstendur af opinni stofu, borðstofu og eldhúsi, með stórum gluggum. Á hæðinni er enn fremur hjónaherbergi og baðherbergi. Hægt er að nálgast stóra verönd og garð frá stofunni. Efri hæðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, en hvort um sig hefur en-suite baðherbergi og aðgang að verönd með útsýni yfir sundlaugarsvæðið. 94m2 kjallarinn/bílskúrinn er með þvottahúsi og geymslu og rými sem hægt er að nýta eftir þörfum eða sem bílskúr.
Öll húsin eru byggð með hágæða efnum og eru tilbúin fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun. Fullbúið eldhús með eldhústækjum, fataskápar, gólfhiti á baðherbergjum, inni og útilýsing, myndavélardyrasími og snjallkerfi fylgir húsunum ásamt sundlauginni.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum