Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 3101019
Nýr kjarni húsa í Benimar, úthverfi sem tilheyrir bænum Benijófar, við suður Costa Blanca. Allar daglegar nauðsynjar eins og stórmarkaðir, verslanir, barir og veitingastaðir eru í göngufæri. Aðeins 10 mínútur tekur að aka að Marquesa golfvellinum og niður að ströndum Guardamar.
Kjarninn býður upp á hús af tveimur gerðum; hús á einni hæð með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og tveggja hæða hús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Jarðhæð beggja gerða er með opinni stofu, borðstofu og eldhúsi með aðgangi að veröndinni og garðinum. Bæði húsin hafa 2 svefnherbergi (eitt en-suite) á jarðhæð. Tveggja hæða húsið hefur þriðja svefnherbergið á efri hæð, með sérbaðherbergi og aðgangi að rúmgóðri verönd.
Velja má um aukahlutir, eins og að koma fyrir þakverönd, einkasundlaug og/eða auka svefnherbergi og baðherbergi fyrir húsin með 2 svefnherbergjum. Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja fataskápar og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum