Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 225091
Glæsilegt einbýli, staðsett í Ciudad Quesada, í fimm mínútna göngufjarlægð frá golfvellinum La Marquesa Golf, þar sem stunda má ýmsa afþreyingu að auki og mjög nálægt allri þeirri þjónustu Rojales bærinn hefur fram að færa. Húsið er 210 m2 og byggt á tveimur hæðum auk stórrar þakverandar með fallegu útsýni. Á kjallarahæð eru 2 svefnherbergi og baðherbergi en á jarðhæð er opin stofa með nútíma eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi, baðherbergi og 30 m2 verönd með aðgangi að stórkostlegri þakverönd. Húsið býr að nútímalegri hönnun með stórum gluggum og björtu rými. Lóðin sem mælist 505 m2 er að hluta til flísalögð og einkasundlaug, 9x4 m, fylgir eigninni.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum