Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Mil Palmeras
Þessi eign er ekki í boði
REF 2926272
Nýr kjarni húsa í innan við 10 mínútna göngufjarlægð frá hinni frábæru Mil Palmeras strönd, við Costa Blanca. Nálægt öllum daglegum nauðsynjum eins og stórmörkuðum, veitingastöðum, börum og kaffihúsum. Meira úrval þjónustu má svo sækja í bæinn Pilar de la Horadada í 10 mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru á einni hæð, með þakverönd og kjallara. Í boði eru hús með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, opinni stofu, borðstofu og eldhúsi, með aðgangi að verönd að framan og aftan. Rúmgóð þakverönd er á húsunum, með útsýni yfir sameiginlega sundlaugarsvæðið. Tiltekin hús hafa stærri garð, háð stærð lóðarinnar. Kjallarinn er stórt og opið rými með mörgum möguleikum. Sameiginlegt svæði hefur stóra miðlæga sundlaug og garða.
Öll húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun, þeim fylgja fataskápar, aðstaða fyrir þvottavél undir stiganum uppá þakveröndina og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Mil Palmeras
Las Mil Palmeras er íbúðabyggð við hafið við Orihuela Costa og heyrir undir bæinn Pilar de la Horada.
Það má segja að í Las Mil Palmeras séu einu bestu strendur sem fyrirfinnast á allri Costa Blanca, með um 3 km. langri strönd af fínum sandi og fjölbreyttri þjónustu. Þótt mikil uppbygging hafi átt sér stað á síðustu árum, býr staðurinn enn yfir róandi töfrum Miðjarðarhafsins, þar sem mögulegt er að kaupa nýjar eignir á sjálfri ströndinni. Skoðið fasteignaframboðið við Las Mil Palmeras
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum