Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 3740744
Nýr raðhúsakjarni í bænum Pilar de la Horadada, við suður Costa Blanca. Hvítar sandstrendur Torre de la Horadada eru í stuttri akstursfjarlægð og bærinn býður uppá alla nauðsynlega þjónustu; matvöruverslanir, banka, apótek og allt mögulegt. Tilvalin staðsetning, bæði fyrir þá sem dvelja vilja árið um kring og þá sem koma í styttri ferðir. Svæðið er vel tengt helstu borgum og svæðum í nágrenninu, svo sem Murcia og Orihuela Costa, auk þess sem tveir flugvellir eru í viðráðanlegri akstursfjarlægð, í Murcia og Alicante.
Húsin eru á tveimur hæðum með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, auk þakverandar. Opin stofa og borðstofa ásamt eldhúsi en hátt er til lofts í stofu sem gerir eignirnar bjartar og rúmgóðar. Á jarðhæð er einnig svefnherbergi og baðherbergi. Á efru hæð er svefnherbergi, annað baðherbergi og stórt rými á pallinum sem nota má sem þriðja svefnherbergið eða auka setustofu. Útaf pallinum er verönd þaðan sem gengið er upp á þakverönd hússins.
Húsin eru tilbúin fyrir uppsetningu á loftkælingu, einkasundlaug og bílastæði á lóð fylgir.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum