Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Veleta
Þessi eign er ekki í boði
REF 3644787
Ný íbúðasamstæða aðeins 200 metra frá ströndinni í La Veleta, rólegu íbúðahverfi milli Torrevieja og Orihuela Costa. Í göngufæri er mikið úrval daglegra þæginda, svo sem stórmarkaðir, pósthús, bankar, verslanir, barir og veitingastaðir. Tvær glæsilegar verslanamiðstöðvar má finna í 10 mínútna akstursfjarlægð. Þökk sé mildu Miðjarðarhafsloftslagi má njóta margs konar útivistar á svæðinu en þar má nefna golf, tennis/padel og vatnaíþróttir.
Kjarninn samanstendur af af byggingum á tveimur hæðum sem bjóða upp á íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, ýmist á jarðhæð með stórum garði eða efstu hæð með þakverönd. Eignirnar hafa opna setustofu, borðstofu og eldhús en alrýmið opnast út á verönd. Gegn aukakostnaði má byggja sundlaug í garði íbúða á jarðhæð, eða setja upp nuddpott á þakverönd í efstu hæðar íbúðum.
Sameiginleg svæði einkennast af Miðjarðarhafsbrag, þar sem garðar eru í kringum stóra sundlaug fyrir fullorðna og börn. Til að stuðla að sjálfbærni verða garðarnir með staðbundnum plöntum og pálmatrjám, sem dregur úr vatnsnotkun. Þá er einnig líkamsræktaraðstaða utandyra í boði fyrir íbúa og bílakjallari.
Eignunum fylgir loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum, innbyggðir fataskápar, rafknúnir gluggahlerar og ílastæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Veleta
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum