Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja
Þessi eign er ekki í boði
REF 3577820
Ný íbúðasamstæða í miðbæ Torrevieja, aðeins 400 metra frá sjó og göngusvæði við ströndina. Fullkomin staðsetning, með miklu úrvali af daglegri þjónustu eins og matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum í göngufæri. Aðal rútustöðin er aðeins í 10 mínútna göngufjarlægð en rútur fara á klukkutíma fresti til Alicante -flugvallarins. Margs konar tómstundastarf má enn fremur finna í nágrenninu, eins og vatnagarð, skemmtigarð, smábátahöfn og ferðamannasiglingaþjónustu.
Einstök bygging, með íbúðum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Allar íbúðirnar hafa opna setustofu, borðstofu og eldhús en alrýmið opnast út á verönd. Hjónaherbergin eru með sér baðherbergi. Íbúðir á fyrstu hæð hafa aðgang að auka verönd en þakíbúðirnar eru með sér þakverönd á þaki hússins. Sameiginlegt svæði eru þakverönd með nuddpotti, útisturtum og svæði til afslöppunar sem allir íbúar geta nýtt sér. Tvær kjallarahæðir eru í húsinu, með geymslueiningum og bílastæðum.
Allar íbúðirnar eru með nútímalegri hönnun og eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgir myndavélardyrasími og bílastæði. Festa má kaup á geymslu og/eða auka bílastæði.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja
Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem horfir alltaf til sjávar, borg sem er stútfull af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllum sem vilja njóta lífsstílsins við Miðjarðarhafið. Borgin býr að einstöku loftslagi sem byggir á nálægð sjávar og staðsetningu hennar á Íberíuskaganum sem slíkum og þessi staðreynd býður okkur uppá meðalhita um 18ºC og meira en 300 sólskinsdaga á ári.
Það fyrsta sem vekur athygli í Torrevieja er umhverfið, þar sem tvö saltlón standa upp úr, annað bleikt en hitt grænt en vötnin eru hluti af þjóðgörðum Lagunas de La Mata og Torrevieja.
Þegar talað er um borgina er við hæfi að nefna tvennt; sjó og salt. Salt er hinn sanni uppruni þessa bæjar. Allt fram á miðja 20. öld var saltiðnaður aðalatvinnuvegur íbúa Torrevieja og í dag er Torrevieja einn helsti saltframleiðandi Spánar með um 600.000 tonna framleiðslu að meðaltali á ári.
Strandlengja Torrevieja er löng, eða samtals 14 km, þar sem finna má fjöldann allan af þéttbýlisströndum, víkum og skotum til að kæla sig í, en mörgum þeirra má hreinlega líkja við paradís.
Strendur Torrevieja eru vottaðar samkvæmt gæðastöðlum og umhverfisstjórnun. Torrevieja hefur þannig gæðastimpil sem hún má vera stolt af.
Mismunandi hefðbundnar hátíðir eru haldnar allt árið í borginni, svo sem páskagöngurnar eða sjógangan til heiðurs La Virgen del Carmen þann 16. júlí.
Maí hátíðin er líka mjög vinsæl meðal íbúa og gesta, með dæmigerðum básum, vínum, matargerð og tónlistarviðburðum. Torrevieja sameinar skemmtun og menningu fullkomlega.
Borgin tekur á móti þér opnum örmum og þú ert velkominn á fallegum stað fullum af lífi, menningu og skemmtun.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum