Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 3065089
Nýr kjarni einbýlishúsa í hjarta Sucina, Murcia, staðsettur í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Mar Menor, og í stuttri göngufjarlægð frá miðbænum, þar sem finna má allar daglegar nauðsynjar. Tilvalin staðsetning fyrir búsetu jafnt sem frí. Svæðið er vel tengt við helstu borgir og bæi og Murcia International flugvöllurinn er í 30 mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru hönnuð til að mæta þörfum eigandans. Í þeim eru 3 svefnherbergi (eitt en-suite), 2 baðherbergi, og rúmgóð opin stofa, eldhús og borðstofa. Stórir gluggar í stofu opnast útá verönd með grillaðstöðu. Stór þakverönd sem nálgast má um utanáliggjandi stiga, er kjörinn staður til að slaka á, eða eyða stund með fjölskyldu og vinum.
Húsin eru byggð á 294m2-373m2 lóðum og hafa stóra verönd og garð með eigin sundlaug og bílastæði.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum