Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 3079114
Nútímaleg raðhús á friðsælu svæði í San Javier, við Costa Cálida. Allar daglegar nauðsynjar eru í göngufæri, svo sem matvöruverslanir, verslanir, barir og veitingastaðir. Strendur Mar Menor eru í 10 mínútna göngufjarlægð frá kjarnanum.
Í boði eru hús á einni hæð með þakverönd, 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Opin stofa, borðstofa og fullbúið eldhús með innbyggðum eldhústækjum eru í húsunum og úr alrými er gengið út á rúmgóða verönd og sundlaugarsvæði. Geymsla er undir stiganum að 75m2 þakveröndinni en þaðan er fallegt útsýni. Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun og lýsing, inni sem úti, fylgir með í kaupunum.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum