Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 217944
Nýr íbúðakjarni í Lo Pagan, fyrir framan Salinas de San Pedro del Pinatar, mjög nálægt ströndinni og allri þjónustu þessa frábæra bæjar við Mar Menor. Tilvalinn staður fyrir bæði þá sem vilja fasta búsetu og fyrir þá sem leita að athvarfi til að eyða fríum að sumri sem vetri.
Nútímalegar og bjartar eignir í blokk með 8 eignum alls. 4 íbúðir eru á jarðhæð með eigin garði og 4 á efri hæð með eigin þakverönd. Allar íbúðir hafa 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, en annað þeirra er ensuite, opið eldhús/stofu og þeim fylgir bílastæði. Stórt sameiginlegt svæði er í kjarnanum með görðum og sundlaug.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum