Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 3277092
Nútímalegur raðhúsakjarni í San Pedro del Pinatar, aðeins 3 km frá ströndinni og mjög nálægt allri daglegri þjónustu í bænum.
Í boði eru tveggja hæða raðhús með þakverönd. Aðalhæðin hefur stofu, borðstofu og eldhús en alrýmið opnast út á verönd með einkasundlaug. Á þessari hæð er einnig með hjónaherbergi og baðherbergi ásamt glerjuðum innri garði sem veitir dagsbirtu. Tvö svefnherbergi og baðherbergi eru á efri hæðinni, auk rúmgóðs stigapalls sem nota má sem lestrarsvæði eða fyrir litla skrifstofu. Hornhúsið hefur auka svefnherbergi og stærri garð.
Eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgir innri og ytri lýsing, eldhústæki, fullbúin baðherbergi, einkasundlaug með útisturtu og bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum