Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Busot-Aigues de Busot
Þessi eign er ekki í boði
REF 109892
Einbýlishús með útsýni yfir sjó, staðsett í Aigues de Busot, litlum bæ í Alicante héraði sem umkringdur er fjöllum og frábærlega tengdur með vegum við nærliggjandi borgir El Campello og Alicante. Eign fyrir þá sem leita að fallegu landslagi og næði milli hafs og fjalla.
Húsin eru byggð á lóðum frá 220 til 460 m2 að stærð og eru öll með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og gestasalerni. Velja má milli nokkurra tegunda húsa og efnis sem notað er við frágang.
Í húsum sem hafa kjallara er hann opinn út að garðsvæðinu öðrum megin.
Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Busot-Aigues de Busot
Busot og Aigües de Busot eru tvö af heillandi þorpum sem finna má í hlíðum fjallanna sem rísa upp af ströndinni í Costa Blanca.
Busot er í hlíðum fjallsins Cabeço d’Or, umkringt gróðri og ræktun. Helsta aðdráttaraflið eru hinir frægu hellar Cuevas de Canalobre, sem mikill fjöldi ferðalanga heimsækir ár hvert, og nálægð við strendurnar í El Campello, sem eru aðeins í 10 km. fjarlægð. Gamli miðbærinn er aðall Aigües de Busot, en einnig er í þorpinu að finna framúrskarandi íbúðabyggðir sem aðallega samanstanda af einbýlishúsum, og mörgum þeirra með stórum görðum og sundlaugum. Í Busot og Aigües de Busot er að finna ævintýralega kosti fyrir fasteignakaupendur sem vilja njóta loftslagsins og lífsins við Miðjarðarhafið í friði frá skarkala strandarinnar. Skoðið fasteignaframboðið í Busot-Aigües de Busot.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum