Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 131775
Nýr kjarni einbýlishúsa í fyrirtaks hverfi í Benitachell, nálægt Moraira og Javea. Húsin eru byggð með tilliti til legu lands og útsýnis til sjávar, með það að markmiði að fullkomna yfirsýn yfir strönd og haf. Nokkrar einingar eru sameinaðar umhverfis útisvæðið með verönd og sundlaug sem þannig verður miðja eignarinnar og griðastaður til að njóta. Framhlið hússins er úr glerplötum og ýmis tækni gefur eigninni karakter, til að mynda hreyfanlegur veggur sem sameinar eða aðskilur eldhús og stofu. Gestasvíta á jarðhæð hefur sína eigin verönd.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.
Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana
Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.
Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.
Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum