Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 204497
Nokkrar lóðir með fallegu útsýni yfir Miðjarðarhafið, þar sem byggja má einbýli sem hönnuð eru að ósk kaupanda, í hjarta Norður Costa Blanca; í Cumbre del Sol hverfinu sem staðsestt er milli Javea og Moraira.
Lóðirnar eru misjafnar að stærð, á bilinu 800 til 2300 m2, snúa í suð-vestur og búa yfir stórkostlegu útsýni yfir Cabo de la Nao í Javea, El Portet í Moraira og Calpe. Hverfið er fullþróað og skipulagt með góðum aðgangi að frægum ferðamannastöðum, auk allrar aðstöðu og þjónustu sem í boði er í sjálfu Cumbre del Sol.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.
Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana
Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.
Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.
Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum