Costa Blanca Norður, Marina Alta, Moraira
Þessi eign er ekki í boði
REF 2954729
Staðsett í íbúðahverfi við Moraira, fallegan sjávarbæ við norður Costa Blanca og með stórkostlegu útsýni. Miðbær Moraira býður upp á úrval daglegrar þjónustu auk glæsilegra stranda. Loftslag á svæðinu gerir það mögulegt að njóta útivistar, eins og golfs og siglinga, allt árið um kring. Einnig er alþjóðlegur skóli á svæðinu, tilvalið fyrir fjölskyldur sem íhuga varanlega búferlaflutninga.
Húsið er byggt á 910m2 lóð, með 4 svefnherbergjum, 4 baðherbergjum og rúmgóðum kjallara. Aðalhæðin er stór og björt með opinni stofu, borðstofu, eldhúsi og gestasalerni. Stór verönd umkringir eignina og þar er önnur tveggja infinity sundlauga, auk annarrar aðstöðu og útibaðherbergis. Svefnherbergin 4 eru á neðri hæðinni, öll með sér baðherbergi en 2 svefnherbergjanna eru með fataherbergi. Öll svefnherbergin opnast út á aðra stóra verönd með annarri sundlaug með nuddpotti. Kjarllarinn er 164m2 og samanstendur af stóru fjölnota herbergi með aðskildu þvottahúsi, gestasalerni og aukaherbergi með sjávarútsýni.
Húsið er byggt með hágæða efnum og því fylgir loftkæling, fullbúið eldhús, gólfhiti, fullfrágenginn garður, snjall heimakerfi, lyfta sem tengir allar hæðir, tvöfaldur bílskúr og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Moraira
Moraira er fallegt Miðjarðarhafsþorp á milli Calpe og Jávea, og ber af vegna náttúrulegra stranda og kristalstærra víka. Fasteignaframboðið í Moraira samanstendur aðallega af einstökum þéttbýliskjörnum með lúxuseinbýlum. Einn af eftirlætisstöðum viðskiptavina sem leita eftir fyrsta flokks húsnæði við ströndina.
Moraira veitir íbúum öryggi, þjónustu, gott loftslag og óviðjafnalegt útsýni yfir Miðjarðarhafið. Skoðið húsnæði við ströndina í Moraira:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum