Costa Blanca Norður, Marina Baja, Alfaz del Pi - El Albir
Þessi eign er ekki í boði
REF 169102
Glæsilegur kjarni 6 lúxus einbýlishúsa á fallegu svæði við Albir ströndina í Alfaz de Pí.
Húsin eru rúmgóð, byggð á lóðum frá 408 til 563 m2 og þeim fylgir lyfta frá kjallaranum uppá þakverönd. Öll húsin hafa 4 svefnherbergi og eru á tveimur hæðum auk kjallara með bílskúr. Á jarðhæð er stór 42 m2 stofa með tvöfaldri lofthæð, nýtísku eldhús með fyrsta flokk eldhústækjum, baðherbergi og svefnherbergi. Á efri hæð eru 3 svefnherbergi, öll með sér baðherbergi.
Frá kjallara uppá þakverönd er húsið tengt með fallegum garði með glerveggjum sem veita birtu um eignina. Auk glæsilegrar hönnunar, eru húsin búin nýjustu tækni með svokölluðu automation kerfi en slíkt kerfi gerir eiganda kleift að fjarstýra ýmsu í húsinu, svo sem gluggahlerum og loftkælingu. Húsunum fylgir einkasundlaug með sjálfvirkum hreinsurum.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Alfaz del Pi - El Albir
Alfaz de Pi er bær við Norður Costa Blanca, sem liggur að Altea og Benidorm. Þéttbýliskjarnann er að finna í hlíðum Sierra Helada, um 3 km. upp af ströndinni. Bærinn hefur einnig yfir að ráða 4 km. strönd, þar sem ströndin El Albir stendur fram úr.
Strönd sett steinum þar sem finna má ýmis konar þjónustu og tómstundir sem boðið er upp á í bænum, ásamt einstöku úrvali af íbúðum. Hér eru margir þéttbýliskjarnar með einbýlishúsum og íbúðum við ströndina, sem eru algengustu húsin á Alfaz del Pi. Mikils metið svæði vegna vel efnaðra íbúanna sem kaupa við ströndina. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Alfaz del Pi - El Albir.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum