Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Santa Pola, Gran Alacant
Þessi eign er ekki í boði
REF 3055045
Nýr íbúðakjarni í íbúðarhverfi Gran Alacant, innan við 3 km frá ströndinni Carabassí, en þar er einstaklega falleg náttúra, sandöldur og furutré við hlið Clot de Galvany, óspilltrar náttúruperlu. Á svæðinu er öll nauðsynleg þjónusta og auk þess aðeins 5 km til Santa Pola og 12 km til borgarinnar Alicante.
Í boði eru íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, stofu með aðgangi að verönd og nútíma eldhúsi með eldhústækjum. Í kjarnanum eru sameiginlegar sundlaugar, fyrir fullorðna og börn, garðar og grillaðstaða auk bílakjallara og geymslurýmis. Í boði eru íbúðir tilbúnar til afhendingar.
Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Santa Pola, Gran Alacant
Gran Alacant er samansafn íbúðabyggða sem eru á skaganum Cabo de Santa Pola, á milli lágra fjalla og strandarinnar Carabassí. Þetta er einn vinsælasti búsetuferðaþjónustustaðurinn á Costa Blanca síðust ár.
Sönnun þessara vinsælda er sú staðreynd að þar búa yfir 11 þúsund manns og að öll þjónusta í borginni er opin allt árið um kring, eins og skólar, heilsugæsla, verslanamiðstöðvar, pósthús, bankar og apótek. Borgin hefur því allt sem þarf til að auðvelda líf þeirra sem kjósa þennan fallega stað við Costa Blanca til að eiga heimili. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Gran Alacant
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum