Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 128644
Nútímaleg einbýlishús í Ciudad Quesada, Rojales. Ciudad Quesada er eitt vinsælasta íbúðarhverfið við suður Costa Blanca og þar má meðal annars finna golfvöll, vatnagarð og óteljandi veitingastaði, bari, matvöruverslanir og tómstundir fyrir alla fjölskylduna. Stutt frá ströndum Guardamar.
Rúmgott einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, einkasundlaug og garði með gervigrasi og verönd. Á jarðhæð er stofa og eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Uppi eru 2 svefnherbergi, eitt með eigin verönd og baðherbergi. Í kjallaranum er bílskúr þar sem pláss er fyrir tvo bíla og annað herbergi sem nota má sem viðbótarstofu, leikherbergi eða jafnvel annað svefnherbergi.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum