Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 232794
Einbýlishús með einkasundlaug á besta stað í Ciudad Quesada, rétt hjá kjarna með stórum matvöruverslunum og annarri þjónustu, í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá frábærum ströndum Guardamar.
Fallega hönnuð eign með tvöfaldri lofthæð í stofu; björt og glæsileg. Opið er inní eldhús og á jarðhæð er einnig svefnherbergi og baðherbergi. Uppi eru tvö tveggja manna svefnherbergi, bæði með ensuite baðherbergi og stigi sem liggur að 60 m2 þakverönd. Eigninni fylgir einkasundlaug og bílastæði en lóðin er flísalögð að hluta.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum