Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 2155575
Íbúðir, tilbúnar til afhendingar, aðeins 900m frá ströndinni í Guardamar del Segura. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta er í göngufæri eða hjólafæri. Guardamar liggur við N332 þjóðveginn, sem tengir bæinn við Alicante, Santa Pola, Torrevieja og Orihuela Costa.
Íbúðir með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, opinni stofu, borðstofu og eldhúsi, með aðgangi að verönd útfrá stofu. Tveggja hæða íbúðirnar hafa gestasalerni að auki og öll svefnherbergi eru staðsett á efri hæð. Þakverönd má nálgast frá verönd á efri hæð. Íbúðirnar eru tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun.
Sameiginlegt svæði samanstendur af sundlaug, garði og bílakjallara en þar má festa kaup á bílastæði að auki.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum