Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 3078643
Nútímalegur raðhúsakjarni, aðeins 600 metra frá ströndinni í Guardamar við suður Costa Blanca. Bærinn er í göngufæri og býður upp á fjölbreytt úrval daglegrar þjónustu allan ársins hring, eins og matvöruverslanir, banka, apótek, veitingastaði og vikulegan götumarkað. Hin frábæra 14 km sandströnd er í stuttri akstursfjarlægð. Guardamar er staðsett milli Alicante og Orihuela Costa og aðeins 30 mínútur frá flugvellinum.
Húsin eru með 3 svefnherbergjum og byggð á þremur hæðum auk kjallara. Aðalhæðin samanstendur af stofu, með aðgangi að verönd og útaf eldhúsinu má finna patio með geymslu og þvottahúsi. Á fyrstu hæð eru tvö stór svefnherbergi og baðherbergi, en á efstu hæð er hjónaherbergi með baðherbergi og þakverönd. Kjallarinn skiptist í tvo hluta, annars vegar fjölnota herbergi fyrir t.d. auka stofu, skrifstofu eða líkamsræktaraðstöðu og hins vegar bílskúr. Raðhúsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun og þeim fylgja fataskápar.
Sameiginleg svæði eru sundlaug, garðsvæði og bílastæði í kjallara.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum