Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 3706306
Nýr íbúðakjarni í El Raso, hverfi sem tilheyrir Guardamar við suður Costa Blanca. Ágætt úrval af daglegri þjónustu, eins og matvöruverslunum, börum og veitingastöðum, tómstundum og íþróttaaðstöðu, er í boði á svæðinu eða í stuttri akstursfjarlægð. Fallegar strendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð og fyrir náttúruunnendur er La Mata þjóðgarðurinn nálægt fyrir gönguferðir eða hjólatúra.
Kjarninn býður uppá íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, af þremur gerðum; jarðhæð með garði, miðhæð með rúmgóðri verönd og þakíbúð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opnu stofurými sem opnast út á verönd með útsýni yfir glæsilegt sameiginlegt svæði. Í sameign eru stórir garðar, sundlaug fyrir fullorðna og börn, leiksvæði fyrir börn, heilsulindaraðstaða og bílakjallari.
Velja má um ýmislegt í frágangi og eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja innbyggðir fataskápar, myndavélardyrasími og bílastæði.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum