Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 1370859
Glæsileg einbýlishús í Las Colinas Golf en þar má finna fleira en golfvöllinn sjálfan; fjölbreytta aðstöðu til íþróttaiðkana, svo sem tennisvelli, líkamsræktarstöð og fallega, yfir 3ja km, gönguleið. Stórt klúbbhús er á svæðinu, veitingahús, kaffihús og verslanir. Að auki búa íbúar að einkastrandklúbbi við La Glea ströndina í Campoamor. Í boði eru þrjár gerðir húsa; tvær þeirra eru byggðar á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum en mismunandi hönnun, byggð á lóðum milli 509 og 687 m2 að stærð. Módel A hefur tvö svefnherbergi á jarðhæð og eitt stórt herbergi á efri hæð. Í módeli B er aðalsvefnherbergið á jarðhæð og við bætist salerni og yfir 50 m2 kjallari. Þriðja líkanið er hús á einni hæð auk þakverandar, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Því húsi fylgir bílskúr. Öll húsin eru búin opnu alrými; með nútíma eldhúsi opnu inní borðstofu og stofu. Stór saltvatnssundlaug fylgir húsunum, eða 10,5x4,5 metar, með 3x5 metra buslsvæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum