Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Los Altos
REF 3714057
Nýr einbýlishúsakjarni á hinu vinsæla svæði Los Altos, í Orihuela Costa. Svæðið er rótgróið og býður upp á allt sem þarf fyrir daglegt líf, svo sem matvöruverslanir, verslanir, bari og veitingastaði, læknamiðstöð og alþjóðlegan skóla. Tómstunda- og íþróttastarf má einnig finna á svæðinu, sér í lagi golfið, en í næsta nágrenni eru fjórir vellir ásamt göngu- og hjólastígum og vatnaíþróttastarfsemi sem stunda má við strendur Orihuela Costa.
Kjarninn samanstendur af tveggja hæða einbýlishúsum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum ásamt þakverönd. Aðalhæðin er jarðhæðin, opið alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu, sem opnast út á verönd sem er að hluta yfirbyggð, sundlaugarsvæði og garð. Hjónaherbergi og baðherbergi má finna á þessari hæð líka. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi og aðgangi að verönd. Njóta má víðáttumikils útsýnis yfir svæðið, sem og Torrevieja saltvatnið frá þakveröndinni. Kjarninn er lokaður og íbúar hafa aðgang með fjarstýringu.
Eignirnar eru vel byggðar og velja má um ýmislegt. Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu, rafdrifnir gluggahlerar eru í svefnherbergjum, lýsing inni og framan við húsin fylgir, ásamt fullkláruðum garði með gervigrasi og pálmatré, einkasundlaug og bílastæði á lóðinni. Lagt er fyrir sólarorku ef fólk vill láta setja slíkt upp.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Los Altos
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum