Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 235865
Íbúðakjarni í Villamartín, um 400 metra frá golfvellinum og verslunarkjarna með fjölbreyttu úrvali verslana og tómstundaaðstöðu. Fimm mínútur tekur að aka að Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og örfáum mínútum lengra eru strendur Orihuela Costa. Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum af mismunandi tegundum; íbúðir á jarðhæð með garði, miðhæðir eða efstu hæðar íbúðir með þakverönd. Allar eignirnar hafa 2 baðherbergi, opna stofu, nútíma eldhús og verönd. Eldhústæki og bílastæði í kjallara er innifalið í verði. Í kjarnanum eru 2 sameiginlegar sundlaugar, önnur þeirra með spa og jacuzzi, aðstaða til líkamsræktar, grænir garðar og leiksvæði fyrir börnin.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum