Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 237727
Nýr kjarni af einbýlishúsum nálægt Villamartin golfvellinum, í rólegu hverfi þar sem alla þjónustu má finna í nágrenninu, svo sem La Plaza de Villamartín og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina en kjarninn er auk þess í aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Húsin eru á tveimur hæðum auk þakverandar og samanstanda af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, verönd og stofu sem opin er inní nútíma eldhús. Eignirnar standa á allt að 178.25m2 lóðum og hafa bílastæði á lóð, eru klárar fyrir uppsetningu á loftkælingu og með gólfhita á baðherbergjum. Góðar eignir á góðu verði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum