Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 259604
Nýr íbúðakjarni í Villamartín, í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og golfvellinum. Mikið framboð af allri þjónustu má finna í næsta nágrenni. Strendur Orihuela Costa eru einnig skammt undan. Í boði eru íbúðir á jarðhæð með garði og íbúðir á efri hæð með þakverönd, ýmist með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum með hita í gólfum. Eignirnar hafa opið alrými, nútíma eldhús og verönd. Allar íbúðir á efri hæð njóta útsýnis yfir hafið frá þakverönd. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug, garður og bílastæði í kjallara.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum