Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Vistabella Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 246199
Nýr húsakjarni í Vistabella golf, íbúðarhverfi í fallegu umhverfi í 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Alla þjónustu má finna í næsta nágrenni, svo sem verslanakjarna, golfvöll með klúbbhúsi, íþróttaaðstöðu og frá svæðinu eru góð vegatenging við helstu borgir á svæðinu eins og Orihuela, Torrevieja og Guardamar.
Parhús á einni hæð, með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og þakverönd. Öll húsin hafa bjarta stofu, borðstofu og eldhús ásamt þvottahúsi, en úr stofunni er gengið út á verönd. Í húsunum eru 2 svefnherbergi og baðherbergi sem og hjónaherbergi með sér fataherbergi og baðherbergi. Öllum eignum fylgir frágenginn garður og og bílastæði á lóð. Mögulegt er að koma fyrir einkasundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Vistabella Golf
Vistabella Golf er íbúðahverfi hannað við golfvöllinn Vistabella. Hverfið tilheyrir Orihuela og er í aðeins 15 km fjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Í hverfinu er verslanasvæði með matvöruverslunum, veitingastöðum og annarri þjónustu. Í nærliggjandi bæjum, Los Montesinos og San Miguel de Salinas er einnig gott úrval af veitingastöðum, börum og verslunum.
Golfvöllurinn sjálfur er 18 holur og mjög aðlaðandi fyrir alla tegundir leikmanna, fjölbreytni er eitt helsta einkenni vallarins og fallegt umhverfi. Önnur aðstaða til íþróttaiðkana er enn fremur á staðnum, þar á meðal róðrarvélar, tennisvellir og frábær aðstaða til að spila keilu. Staðsetningin og gæði eignanna gerir Vistabella Golf tilvalið svæði fyrir þá sem leita að heimili á góðu verði, fallegu náttúrulegu umhverfi og án þess að vera of langt frá ströndinni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum