Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Lo Romero Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 1902971
Nýr kjarni einbýlishúsa í Lo Romero Golf, en svæðið tilheyrir bænum Pilar de la Horadada. Golfvöllurinn er 18 holu og skammt frá bænum sjálfum þar sem finna má fjölbreytt úrval af þjónustu. Kjarninn er í stuttri akstursfjarlægð frá frábærum ströndum Torre de la Horadada. Góð tenging er við nærliggjandi borgir, Murcia og Alicante.
Húsin eru á einni hæð, með 2 eða 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, opinni stofu og eldhúsi og þakverönd. Úr stofu má ganga út á verönd og á lóðinni er eigin bílastæði. Farið er uppá þakveröndina að utanverðu og útsýnið yfir golfvöllinn er fallegt. Í sameign eru sundlaugar og garðar.
Staðsetningin, falleg hönnun og frágangur, gera þessar eignir að góðri fjárfestingu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Lo Romero Golf
Lo Romero Golf svæðið er yfir 1.25 milljón fermetra stórt og þar með er talinn 18 holu golfvöllur, par 72, með klúbbhúsi, æfingasvæði, íþrótta- og tómstundaaðstöðu, hóteli og verslunum.
Stórkostlegt útsýni yfir hafið, frábær staðsetning, aðeins 5 km frá fallegum ströndum Torre de la Horadada og hönnun svæðisins með breiðum götum og fallegum furutrjám, hafa gert þennan golfvöll og hverfið sem honum tilheyrir að einum vinsælasta stað á svæðinu síðan opnað var í janúar 2008.
Frábært framboð er á fasteignum á svæðinu, en einbýlishús af ýmsum gerðum ráða þar ríkjum.Stórkostlegt útsýni yfir hafið, frábær staðsetning, aðeins 5 km frá fallegum ströndum Torre de la Horadada og hönnun svæðisins með breiðum götum og fallegum furutrjám, hafa gert þennan golfvöll og hverfið sem honum tilheyrir að einum vinsælasta stað á svæðinu síðan opnað var í Janúar 2008.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum