Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
Þessi eign er ekki í boði
REF 3026992
Nýtískuleg raðhús nálægt bænum San Miguel de Salinas og Villamartin golfvellinum, sem og vinsælum ströndum Orihuela Costa.
Kjarninn samanstendur af raðhúsum með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Flest húsin hafa einkagarð og rúmgóða þakverönd en sum hafa annaðhvort garð eða þakverönd. Húsin eru afhent með frágengnum garði og tilbúin fyrir uppsetningu á loftkælingu. Kjarninn er lokaður af og honum fylgir sameiginlegur garður og glæsileg sundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
San Miguel de Salinas er spænskur bær við suður Costa Blanca. Bærinn er byggður á hæð og nýtur útsýnis yfir Torrevieja saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínuakra í grenndinni.
San Miguel de Salinas er staðsettur nálægt nokkrum golfvöllum, svo sem Las Colinas og Villamartín og býður íbúum sínum uppá sjarma miðjarðarhafsþorpsins. Njóttu vikumarkaðarins, heimsæktu hellana í bænum og taktu þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Allt þetta, ásamt frábæru framboði þjónustu, gerir San Miguel de Salinas að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja koma í frí við Miðjarðarhafsströndina.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum