Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
Þessi eign er ekki í boði
REF 834353
Nútíma einbýlishús í íbúðarhverfi San Miguel de Salinas, en fjórir helstu golfvellir á svæðinu eru þar skammt undan; Villamartin Golf, Las Ramblas Golf, Real Golf Club Campoamor og Las Colinas Golf. Aðeins 10 mínútur frá ströndum Orihuela Costa og öll nauðsynleg þjónusta í næsta nágrenni, svo sem matvöruverslanir, apótek, bankar og fleira. Tilvalinn staður til að búa allt árið.
Eignirnar hafa 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi og eru byggðar á tveimur hæðum auk þakverandar. Á jarðhæð er björt stofa/borðstoa, nútíma eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Á annarri hæð eru tvö stór svefnherbergi, bæði með baðherbergi og útgangi á verönd. Stór garður fylgir húsunum með einkasundlaug og bílastæði. Húsin eru klár fyrir uppsetningu á loftkælingu og gólfhiti er á baðherbergjum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
San Miguel de Salinas er spænskur bær við suður Costa Blanca. Bærinn er byggður á hæð og nýtur útsýnis yfir Torrevieja saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínuakra í grenndinni.
San Miguel de Salinas er staðsettur nálægt nokkrum golfvöllum, svo sem Las Colinas og Villamartín og býður íbúum sínum uppá sjarma miðjarðarhafsþorpsins. Njóttu vikumarkaðarins, heimsæktu hellana í bænum og taktu þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Allt þetta, ásamt frábæru framboði þjónustu, gerir San Miguel de Salinas að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja koma í frí við Miðjarðarhafsströndina.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum