Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Mata
Þessi eign er ekki í boði
REF 229138
Glæsileg einbýli í La Mata. Frábær staðsetning fyrir nútímaheimili með beinum aðgangi að hvítum sandströndum og öllum verslunum og þjónustu þessa litla bæjar á Costa Blanca.
Skandinavísk hönnun er á húsunum; einföld, glæsileg og með háum gæðastöðlum. Húsin eru á tveimur hæðum, auk þakverandar og samanstanda af 3 tveggja manna svefnherbergjum með ensuite baðherbergjum, auk gestasalernis. Á neðri hæð er þvottahús, herbergi sem hægt væri að breyta í fjórða svefnherbergið og tvö stórkostleg tveggja manna svefnherbergi með beinum aðgangi að verönd og sundlaug. Á efstu hæð er opið alrými með nútíma eldhúsi/borðstofu og rúmgóðri stofu með aðgangi að veröndinni, svefnherbergi, baðherbergi og gestasalerni. Á þakverönd er grillaðstaða. Húsin eru byggð á 170-213 m2 lóðum. Öllum eignum fylgir svokallað automation kerfi sem gerir kleift að fjarstýra ýmsu í húsinu, hiti er í gólfum og loftkæling fylgir. Einkasundlaug, garður og bílastæði eru við hverja eign.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Mata
La Mata er lítið þorp sem heyrir undir Torrevieja. La Mata býður upp á 2ja km langar strendur með fínum sandi og sjarma Miðjarðarhafsþorps ásamt miklu úrvali af þjónustu. Fullkomin blanda hefða og nútímaþæginda.
Fullkominn staður til að njóta hafsins án þrengsla stórborgarinnar. Nýbyggingarnar á svæðinu eru íbúðir og raðhús í fyrsta flokki, í minna en 300 m. fjarlægð frá ströndinni og á mjög samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboð okkar við ströndina í La
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum