Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Þessi eign er ekki í boði
REF 876051
Einbýlishús í Los Balcones með aðgangi að sameiginlegu svæði með sundlaugum og görðum. Los Balcones er vinsælt hverfi í Torrevieja en í hverfinu er gott úrval þjónustu, svo sem matvöruverslanir, skólar, apótek, kirkja og sjúkrahús. Aðeins 10 mínútur tekur að aka að ströndum Punta Prima og La Zenia.
Húsin eru með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á tveimur hæðum með þakverönd og kjallara/bílskúr sem rúmar tvo bíla. Öllum húsunum fylgir einkasundlaug með möguleika á upphitun, tilvalið fyrir þá sem vilja njóta sundlaugarinnar allt árið.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Los Balcones er ein elsta íbúðabyggð Torrevieja og þjónustan þar er óviðjafnanleg, með fjölda ólíkra verslana, ásamt tómstundum og sjúkrahúsi.
Um er að ræða þéttbýliskjarna inn til landsins, um fjóra km frá ströndu, og samanstendur fasteignaframboðið af íbúðum og raðhúsum en þó sérstaklega einbýlum með stórum görðum. Hér má sjá fasteignaframboðið í Los Balcones:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum