Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Mazarrón
Þessi eign er ekki í boði
REF 3072897
Nýr kjarni íbúða í vinsæla strandbænum Mazarrón við Costa Calida með stórbrotnu útsýni yfir sjóinn. Bærinn sjálfur er aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð, þar sem allar daglegar nauðsynjar er að finna. Þetta er kjörið svæði fyrir áhugamenn um vatnaíþróttir, með frábærum möguleikum til köfunar, sem gerir eignirnar að kjörinni fjárfestingu.
Nútíma íbúðir á jarðhæð eða efri hæð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Stofa, borðstofa og eldhús eru í björtu rými, með aðgangi að verönd út frá stofunni. Jarðhæðar íbúðir hafa stóra verönd en íbúðir á efri hæðinni hafa þakverönd með útsýni yfir sjóinn.
Íbúðirnar eru búnar góðum frágangi og velja má um efni og aukahluti, svo sem að koma fyrir einkasundlaug fyrir íbúðir á jarðhæð. Allar íbúðirnar eru tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun og koma með innbyggðum fataskápum og bílastæði.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Mazarrón
Mazarrón er einn af aðal ferðamannastöðunum við strönd Murcia enda búin 35 km strandlengju þar sem finna má 15 strendur við byggð og 16 náttúrulegar strendur með földum klettum.
Þrátt fyrir það aðdráttarafl sem Mazarrón hefur á ferðamanninn, heldur bærinn hefðbundnum sjarma Miðjarðarhafsbæjar, þökk sé eftirliti sem haft er með þéttbýlismyndun á svæðinu. Auk þéttbýliskjarna Mazarrón, er nauðsynlegt að tala um höfnina í Mazarrón en hún er staðsett í gríðarfallegum flóa með víðum ströndum og heillandi klettum. Hrein paradís fyrir þá sem unna köfunaríþróttinni, þökk sé tæru vatninu og fegurðinni sem þar er falin en þar má finna tvö sokkin skip sem talin eru elstu skiprek Miðjarðarhafsins.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum