Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 4264716
Nýr einbýlishúsakjarni í íbúðahverfi í Fortuna, inni í landi í Murcia. Svæðið hefur allt að bjóða fyrir þá sem leita að sumarhúsi fjarri fjölförnum ferðamannasvæðum eða fyrir þá sem vilja friðsælt umhverfi til að njóta allt árið um kring. Bærinn býður uppá úrval þjónustu, svo sem matvöruverslanir, verslanir og veitingastaði, auk hinna þekktu náttúrubaða. Borgirnar Murcia og Orihuela eru í 30 mínútna fjarlægð með bíl, með mun fjölbreyttara úrvali þjónustu. Fallegar strendur Murcia, eins og San Pedro del Pinatar og Los Alcázares, eru í klukkutíma akstursfjarlægð.
Nútíma einbýlishús á einni hæð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, byggð á 400m2 lóð. Hönnun hússins endurspeglar einfaldleika skandinavískrar hönnunar, með náttúrulegum efnum eins og timbri og steini. Með því að nota stóra lofthæðarháa glugga eru innirýmin björt og renna óaðfinnanlega saman við útirýmin. Hjónaherbergi er með sér baðherbergi og fataherbergi. Húsinu fylgir bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum