Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Þessi eign er ekki í boði
REF 2025840
Nýr íbúðakjarni í Mar de Cristal, við strendur Murcia. Heillandi þorp, aðeins 500m að fallegri sandströnd og öll nauðsynleg þjónusta í næsta nágrenni. Tilvalinn staður fyrir þá sem unna íþróttum því margt er í boði á svæðinu; tennis, körfubolti, siglingar, golf og fleira. Svæðið er vel tengt með vegum við helstu borgir í kring, auk þess sem lestarsamgöngur eru í boði og þrír alþjóðlegir flugvellir skammt frá.
Kjarninn er á tveimur hæðum og velja má um jarðhæðareignir með garði eða efri hæðar eignir með þakverönd, ýmist með 2 eða 3 svefnherbergjum. Opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu er í eignunum en þaðan má sjá yfir sundlaugarsvæðið. Fataskápar eru í öllum svefnherbergjum og sér baðherbergi er innaf hjónaherbergi. Úr efri hæðar eignum er gengið út á lítinn pall til að komast upp á þakveröndina.
Stórt sameiginlegt svæði er í miðjum kjarnanum, með tveimur sundlaugum og görðum. Hver eign er afhent klár fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun. Þvottahús, einkabílastæði og geymsla fylgir með í kaupunum.
Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Mar de Cristal tilheyrir Cartagena eins og áður segir. Ströndin þar er þekkt fyrir tært vatnið eins og nafnið gefur til kynna en Cristal þýðir gler.
Ströndin hefur oftast verið heiðruð með Bláa Flagginu af öllum ströndum Murcia. Fyrir frábæra staðsetningu og fyrirtaks veðurfar, er Mar de Cristal álitin standa fremst í flokki, bæði hvað varðar sumarleyfisdvalarstað og þegar kaupa skal fasteign erlendis, nánar tiltekið í Murcia héraði. Þar er framboð þjónustu mjög gott, með veitingastöðum, verslunum, aðstöðu til íþróttaiðkana og öllu öðru sem nauðsynlegt er þegar fólk kemur sér upp heimili á Spáni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum