Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3359196
Kjarni raðhúsa í Dolores de Pacheco, íbúðahverfi nálægt Los Alcázares, við Costa Cálida. Þorpið býður upp á úrval af daglegri þjónustu, en í Los Alcázares er mikið úrval af matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum. Strendur Mar Menor eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.
Raðhús á einni hæð, auk rúmgóðrar þakverandar, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Hátt er til lofts í stofu og fullbúið eldhús fylgir. Alrýmið opnast út á verönd með einkasundlaug og garði. Af þakveröndinni má svo njóta landslagsins í kring og þar er sumareldhús og tenging fyrir þvottavél.
Eignirnar eru hannaðar með hlýjum litum og viðarútliti og eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja fataskápar, útieldhús á þakverönd, sundlaug og útisturta, auk bílastæðis á lóð.Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum