Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 219318
Nýr raðhúsakjarni staðsettur í Lo Pagan, San Pedro del Pinatar. Aðeins 740 metrum frá ströndinni og í nágrenninu er öll nauðsynleg þjónusta; veitingahús, verslunarkjarnar, flugvöllur, höfnin í Lo Pagan og fiskimarkaðurinn.
Um er að ræða 15 raðhús á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt stóru sameiginlegu svæði með görðum, sundlaug og barnaleiksvæði.
Nútímaleg og björt heimili með garði, þakverönd og verönd. Húsin eru klár fyrir uppsetningu á loftkælingu og þeim fylgir bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum