Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
Þessi eign er ekki í boði
REF 3973979
Þessi einstaki íbúðakjarni er staðsettur á frábærum stað, aðeins 25m frá Fuengirola göngusvæðinu, innan Higuerón Reserve Resort. Á staðnum er heilsulindaraðstaða og aðstaða til íþróttaiðkana í íþróttaklúbbnum en kjarninn er að auki nálægt sporvagnastöðinni. Hann er einnig tengdur strandklúbbi þar sem finna má sundlaug á þakinu, þakverönd og nuddpott, auk lítillar verslanamiðstöðvar. Eigendur fá skráningu og fyrsta ársgjald frítt til að njóta aðstöðunnar.
Kjarninn býður upp á þakíbúðir á tveimur hæðum með 2 svefnherbergjum og þakverönd. Hönnunin er nútímaleg, með bogadregnum línum og glæsilegum gluggum frá gólfi til lofts, sem hleypa fallegri birtu í híbýlin og bjóða jafnframt upp á útsýni yfir Miðjarðarhafið.
Hverri eign fylgir loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum, fullbúið eldhús með eldhústækjum, snjallkerfi og orkusparnaðarkerfi, auk bílastæðis og geymslu.Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.
Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.
Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum