Raðhús með útsýni til hafs, 500m frá strönd í Fuengirola

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Þessi eign er ekki í boði


3

3

142.53 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4289880

Glæsileg raðhús í Fuengirola, aðeins 500m frá ströndinni og með ótrúlegu sjávarútsýni. Tilvalin staðsetning, í friðsælu íbúðahverfi en á sama tíma er stutt í alla þjónustu, svo sem matvöruverslanir, skóla, banka, heilsugæslustöð, veitingastaði og tómstundastarf. Finna má nokkra golfvelli innan 15 km radíusar en þar skara framúr Cerrado del Águila Golf & Resort og Santana Golf. A-7 og AP-7 hraðbrautirnar tengja kjarnann við aðrar helstu borgir svæðisins, eins og Marbella á 30 mínútum, Estepona á 50 mínútum og Málaga alþjóðaflugvöllinn á aðeins 25 mínútum.

Nútímaleg raðhús á þremur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, stórum veröndum og garði. Nútímaleg hönnun eignanna leggur áherslu á bjarta og þægilega innviði, með suðursvölum sem bjóða upp á ótrúlegt sjávar- og fjallaútsýni. Aðalhæðin er opin og sameinar eldhús, borðstofu og setustofu, með stórum glerhurðum út á rúmgóða verönd. Einnig er gestasalerni á þessari hæð. Raðhúsin eru með lúxus frágangi og bílastæði á lóð.

Samstæðan er lokuð og býður upp á næði og friðsælt umhverfi, sem felur í sér sameiginlega sundlaug og garðsvæði.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • yfirbyggt bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.  

Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.

Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu. 

  • 22 km
  • 3 km
  • 3 km
  • 1 km
  • 3 km
  • 5 km

Nánari upplýsingar um Fuengirola

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.