Costa del Sol, La Axarquía, Rincón de la Victoria
REF 4827371
Nýr íbúðakjarni með nútímalegum íbúðum í Rincon de la Victoria, íbúðahverfi í Malaga. Kjörin staðsetning, innan við 10 mínútum frá ströndinni og miðbænum sem býður upp á alls kyns þjónustu, s.s. skóla, matvöruverslanir, apótek, banka, verslanir og íþróttaleikvanga. Svæðið hentar einnig vel til útivistar, s.s. golf, hlaup, hjólreiðar, fjallgöngur og ýmis vatnasport. Svæðið er vel tengt vegakerfinu, bæði við A-7 hraðbrautina og N-340, sem gerir það þægilegt að fara á helstu ferðamannastaði í nágreninu, s.s. til Torremolinos og Benalmádena á um 40-45 mínútum. Borgin Malaga, með AVE stöðinni og alþjóðaflugvellinum, er í 30 mínútna fjarlægð þannig að svæðið er vel staðsett fyrir þá sem hyggjast setjast þar að varanlega sem og þá sem vilja eiga athvarf í sólinni.
Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, sem eru fáanlegar í ýmsum útgáfum; jarðhæðir og miðhæðir með stórum veröndum, og þakíbúðir með þakverönd. Allar íbúðirnar snúa í suð-vestur, eru bjartar og bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir miðjarðarhafið. Stofan, borðstofan, og eldhúsið, með búrherbergi, eru í opnu rými sem opnast út á verönd. Öll svefnherbergin eru með aðgengi út á verönd og hjónaherbergið er með baðherbergi inn af.
Íbúðunum fylgir fullbúið eldhús með eldhústækjum, tvöfalt gler, gólfhiti á öllum gólfum, kynding með lágmarks orkunýtingu, loftkæling, bílastæði og geymsla. Allar verandir eru með vatnstengi, rafmagns- og sjónvarpstengi, sem og útilýsingu. Þakíbúðirnar eru einnig með yfirbyggða pergólu.
Kjarninn er með sameiginlega sundlaug, eina fyrir fullorðna og aðra fyrir börn, auk grænna svæða sem eru kjörin til þess að slaka á og njóta loftlagsins á Costa del Sol.
Costa del Sol, La Axarquía, Rincón de la Victoria
Rincón de la Victoria er ferðamannastaður við Costa del Sol, þekktur fyrir sjávarhella og strendur. Sökum nálægðar við borg Málaga (sem liggur í 16 km fjarlægð um hraðbrautina), hefur staðurinn orðið gististaður fjöldamargra þó að enn megi njóta karakters fiskiþorpsins.
Rincón de la Victoria tilheyrir og er samþætt höfuðborgarsvæði Málaga. Með íbúafjöldann 49.790 er staðurinn níunda fjölmennasta sveitarfélag héraðsins og annað í röðinni á svæðinu sjálfu, á eftir Vélez-Málaga.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum